Grásleppan í Mannlega þættinum

Grásleppan hefur verið veidd og nýtt gegnum tíðina einkum og sér í lagi vegna gómsætra hrognanna sem eru eftirsótt víða um heim. Áður fyrr var aflanum að stærstum hluta hent eftir að hrognin höfðu verið hirt. Í seinni tíð hefur grásleppan til dæmis verið seld heilfryst til Kína þar sem hún þykir mikið lostæti. Spegill fortíðar - Silfur framtíðar er heiti á viðburði sem verður í Breiðfirðingarbúð á fimmtudaginn. Katrín Rut Bessadóttir, verkefnastjóri í HR er kynningastýra Grásleppunnar, og Eva María Hilmarsdóttir framkvæmdastýra Grásleppunnar komu í þáttinn, en þær fara fyrir hópi kvenna sem hefur það að markmiði að sýna fram á vannýtta möguleika á grásleppu.

Hlustið á þáttinn hér!

Next
Next

GDANSK