Grásleppuhrogn

GRÁSLEPPUHROGN

Grásleppuhrognin eru í 22% saltpækli og geymast vel þannig í kæli.

Hrognin þarf að útvatna fyrir neyslu og mælum við hér með tveimur aðferðum.

Annars vegar að setja innihald krukkunnar í sigti og skola vel, færa svo í skál með 2 lítrum af köldu vatni og leyfa að liggja í 4-6 klukkutíma, eða þar til ykkur finnst saltmagnið hæfilegt.

Hinsvegar er hægt að skola hrognin í sigti undir rennandi vatni, setja svo í skál og leyfa vatni að renna í skálina í um 2 klukkutíma, eða þar til ykkur finnst saltmagnið hæfilegt.

Gott er að bera hrognin fram á blini, kexi eða ristuðu brauði ásamt sýrðum rjóma og graslauk. Einnig má útbúa grásleppudýfu (sjá hér fyrir neðan). Nýjungagjarnir gætu t.d. prófað að útbúa pizzu með hvítlauksolíu og rjómaosti og baka, setja svo hrognin, smátt saxaðan rauðlauk og sýrðan rjóma ofan á eftir bakstur!

Algjört hnossgæti!